Fréttir
Í samræmi við þríhliða yfirlýsingu Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og ríkisstjórnarinnar frá 5.3 2020 um nauðsyn þess að hægja á útbreiðslu COVID-19 hefur á undanförnum dögum verið unnið að lagafrumvarpi sem tryggja á launarétt launafólks sem þarf að sæta sóttkví skv. fyrirmælum yfirvalda. Frumvarpið hefur nú verið lagt fram á Alþingi og er þar til meðferðar. Meginreglan verður sú að atvinnurekendur haldi áfram að greiða laun en ríkið endurgreiði þeim allt nema launatengdu gjöldin. Kanna ber möguleika á að starfsmenn fari í fjarvinnu og skerðast þá endurgreiðslur sem því nemur. Greiði atvinnurekandi ekki laun meðan á sóttkví stendur geta einstaklingar...
Lesa grein