Fréttir
Dagana 5. - 9. september fór Evrópumót iðn-, verk- og tæknigreina, Euroskills 2023, fram í Gdańsk í Póllandi. Ellefu ungir og efnilegir keppendur frá Íslandi tóku þátt í jafn mörgum iðn- og verkgreinum, en Ísland hefur aldrei átt jafn marga þátttakendur og á Evrópumótinu í ár. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Verkiðn. Verðlaunaafhending og lokaathöfn Euroskills 2023 fór fram með pomp og prakt á stórum íþróttaleikvangi í Gdańsk frammi fyrir þúsundum áhorfenda í gærkvöldi. Þó Ísland hafi ekki átt verðlaunahafa á mótinu að þessu sinni náðu fjórir íslenskir keppendur framúrskarandi árangri og hlutu viðurkenninguna „Medallion for Excellence“. Þá fékk...
Lesa grein