Nýtt Fréttabréf FIT komið út

Fréttabréf FIT er komið út. Blaðið er birt hér á vefnum en fer í prentun í dag. Því verður í kjölfarið dreift á vinnustaði og til þeirra félagsmanna sem eftir því hafa óskað.

Í blaðinu er umfjöllun um kjarasamninga áberandi, eins og von er. Þar er líka að finna pistil formanns, greinar um lífeyrismál, umfjöllun um útskriftir og áhugaverð viðtöl, svo eitthvað sé nefnt.

Efni í blaðinu:

  • Pistill formanns – „Kærkomnar kjarabætur“
  • Viðtal við Þorstein Kristmundsson, starfsmann FIT
  • Pistill um átakaþing ASÍ
  • Örfréttir frá félaginu
  • Viðtal við Guðfinn Þór Newman, framkvæmdastjóra Samiðnar
  • Kynning nýrra kjarasamninga
  • Norðurlandaþing hársnyrta í Reykjavík
  • Bylting í upplýsingagjöf – umfjöllun um eiginleika nýs vefs FIT
  • Laun og launaþróun
  • Niðurstöður kjarakönnunar FIT
  • Myndir frá afhendingu sveinsbréfa
  • Viðtal við Lárus Lárusson blikksmíðameistara um starfsferilinn
  • Brennandi áhugi á lífeyrismálum – umfjöllun um námskeið FIT um lífeyrismál
  • Myndir úr ferð heldri manna félagsins
  • Sannkölluð kjarabót – Ólafur Sigurðsson hjá Birtu skrifar um breytingar á lögum um lífeyrismál